Hægt er að senda tölvupóst á netfangið: sine@sine.is og verður erindum svarað við fyrsta tækifæri.
Bólumyndun á námslánamarkaði Greinin birtist í Morgunblaðinu 18.nóvember 2015 Bólumyndun á námslánamarkaði Það er líklega ekki tilviljun hve margir íslenskir stúdentar ákveða að leggja stund á háskólanám á erlendri grundu. Að vera háskólanemi í útlöndum eru mikil forréttindi. Burtséð frá hinu formlega námi sem er auðvitað nauðsynlegt þá er ekki síður mikilvæg reynsla að kynnast nýrri menningu og fólki frá ólíkum heimshornum og læra að heimurinn er aðeins stærri en alheimsnaflinn okkar góði. Þrátt fyrir að ég líti ekki á háskólanám erlendis sem sjálfsögð mannréttindi, þá finnst mér mikilvægt að sem flestir hafi aðgang að því. Ástæðan er sú að…
Er fækkun námsmanna erlendis hluti af stefnu íslenskra stjórnvalda í menntamálum? Námsmönnum erlendis sem taka námslán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) fer fækkandi ár hvert. Hver skyldi vera skýringin á því? Við sem störfum að málefnum námsmanna erlendis höfum áhyggjur af því að niðurskurður á framfærslu námsmanna sem hefur verið framkvæmdur tvö ár í röð geti haft mikið um það að segja. Ekki nóg með að framfærslan hafi verið lækkuð heldur hafa ferðalán, sem stóðu námsmönnum til boða, verið skorin niður að stórum hluta. Vegna þessa niðurskurðar, sem enn er ekki séð fyrir endann á, hefur þeim fækkað sem líta…
KILROY Foundation er sjálfstæð stofnun (non profit) sem er með það markmið að stuðla að þróun á alþjóðlegum skilningin og auka námstækifæri með því að styðja við skólastarf víðsvegar um heiminn. Veittir eru styrkir fyrir: Námi erlendis Starfsnámi erlendis Sjálfboðastarfi erlendis Í desember á þessu ári mun stofnunin veita 10 styrki, hver að upphæð EUR 1500 Opið er fyrir umsóknir og langar okkur að sem flestir fái tækifæri til að sækja um. Nánari upplýsingar eru að finna hér www.kilroyfoundation.net/grants/
Ný stjórn SÍNE tók við í síðstu viku, um leið og við þökkum fráfarandi stjórn kærlega fyrir þeirra störf, óskum við nýrri stjórn góðs gengis á komandi vetri.
Aðalfundur SÍNE verður haldinn í Hinu Húsinu mánudaginn 10.ágúst kl. 18:00, kosið verður í stjórn félagsins, við hvetjum áhugasama aðila til að hafa samband ef þeir hafa áhuga á að bjóða sig fram. Netfangið er: sine@sine.is Boost
ReykjavíkurAkademían býður háskólanemum í framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) í félags- og hugvísindum tímabundna vinnuaðstöðu í svonefndri Stúdentastofu í húsakynnum Akademíunnar að Þórunartúni 2 í Reykjavík (sjá www.akademia.is) á mjög góðu verði eða krónur 10.000.- á mánuði, þjónustugjöld innifalin, fyrir tímabilið 1. september 2015 til 31. desember 2015. Möguleiki er á að komast inn í ágúst ef áhugi er fyrir hendi. Vinsamlegast látið vita ef þið viljið vera í ágúst líka.
Skrifstofa SÍNE verður lokuð frá mánudeginum 6.júlí til 4.ágúst, vegna sumarleyfa, öllum tölvupósti verður þó svarað, netfangið er: sine@sine.is
Umboðsmaður Alþingis hefur sent bréf til mennta- og menningarmálaráðuneytisins og biður um svör afhverju erindum SÍNE um nýjar úthlutunarreglur hefur ekki verið svarað. Óskað er eftir að svar berist eigi síðar en 16.júní nk.