hugvitið heim 

hugvitið heim 

hugvitið heim 

hugvitið heim 

hugvitið heim 

hugvitið heim 

Hands holding a small globe in their palms

Leiðir liggja til allra átta...

Að ganga menntaveginn getur merkt svo margt. Sum rúlla á rafhlaupahjóli niður í Vatnsmýri á meðan önnur koma sér alla leið til Kambódíu. Það er hagur samfélagsins að við fetum ekki öll sömu troðnu slóðana, heldur höfum sem flest tækifæri til að fara út um allan heim og sækja fjölbreyttar hugmyndir til margra menningarsamfélaga.

Og það er einmitt þetta sem við ætlum að ræða í Grósku 24. mars 2023 frá kl. 12:30-17.00

Streymi

Ertu fjarri? Jafnvel í námi einhversstaðar allt annarsstaðar á hnettinum? Fylgstu þá bara með okkur í streymi!

Streyma á Vimeo

Ávörp & erindi

Frummælendur málþingsins munu ræða málefni námsfólks erlendis frá ýmsum sjónarhornum.

“Íslenskt samfélag má aldrei einangrast. Með því að sækja okkur færni, þekkingu og reynslu í öðrum löndum, getum við auðgað samfélagið hérna heima.”

Bjarki Þór GrönfeldtForseti SÍNE
A man in a dark blue coat looks at the camera. He has round glasses, a beard and brown hair.
HUGMYNDIRNAR HEIM

Kristján Guy Burgess

Kristján Guy Burgess (fæddur 31. mars 1973) er íslenskur alþjóðastjórnmálafræðingur, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra.

Kristján Guy Burgess (fæddur 31. mars 1973) er íslenskur alþjóðastjórnmálafræðingur, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra.

Kristján Guy gekk í Menntaskólann í Reykjavík og nam svo sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur framhaldsmenntun í alþjóðastjórnmálum og alþjóðalögum. Kristján hefur starfað sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu og var um tíma fréttastjóri á DV. Hann varð aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Kristján er í sambúð með Rósu Björk Brynjólfsdóttur og eiga þau tvö börn saman.

Kristján lærði alþjóðarfriðar- og öryggisfræði í London.

a blond woman, with lipstick, smiles at the camera.
ÁVARP RÁÐHERRA

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Áslaug er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, en málefni námsmanna erlendis heyra þannig til ráðuneytis hennar.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2016–2021 og Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2021 (Sjálfstæðisflokkur).

Dómsmálaráðherra 2019–2021, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2021–2022, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2022–.

Fædd í Reykjavík 30. nóvember 1990. Foreldrar: Sigurbjörn Magnússon (fæddur 31. júlí 1959) hæstaréttarlögmaður og Kristín Steinarsdóttir (fædd 1. maí 1959, dáin 12. nóvember 2012) kennari.

Stúdentspróf VÍ 2010. BA-próf í lögfræði HÍ 2015. MA-próf í lögfræði HÍ 2017.

Starfsmaður jafningjafræðslu Hins hússins 2010. Blaðamaður á Morgunblaðinu 2011–2013. Lögreglumaður hjá lögreglunni á Suðurlandi 2014–2015. Varaformaður Æskulýðsráðs 2014–2016. Laganemi á lögmannsstofunni Juris 2016. Dómsmálaráðherra 6. september 2019 til 27. nóvember 2021. Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra frá 1. febrúar 2022.

Í stjórn SUS, Sambands ungra Sjálfstæðismanna, frá 2011. Formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, 2011–2013. Funda- og menningarmálastjóri Orators, félags laganema við HÍ, 2015–2016. Ritari Sjálfstæðisflokksins 2015–2019.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis norður 2016–2021 og Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2021 (Sjálfstæðisflokkur).

Dómsmálaráðherra 2019–2021, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2021–2022, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2022–.

Allsherjar- og menntamálanefnd 2017 (formaður 2017), efnahags- og viðskiptanefnd 2017, utanríkismálanefnd 2017–2019 (formaður 2017–2019).

Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 2017–2019 (formaður 2017–2019), Íslandsdeild NATO-þingsins 2017 (formaður 2017). Þingmannanefnd Íslands og ESB 2018–2019 (formaður 2018–2019).

AUÐUGRA LAND Í FJÖLBREYTTU SAMFÉLAGI

Miriam Petra Ómarsdóttir Awad

BARÁTTUKONA GEGN FORDÓMUM // ÍSLENDINGUR

Miriam Petra Ómarsdóttir Awad er íslensk kona sem sinnir fræðslu um fordóma á Íslandi. Miriam hefur rannsakað áhrif kynþáttahaturs og fordóma á sjálfsmyndir íslenskra kvenna með erlendan bakgrunn og skoðað samhengi nýlendustefnu og íslenskrar þjóðarsjálfsmyndar í tengslum við fordóma á Íslandi. Miriam starfar nú hjá Rannís þar sem hún er inngildingarfulltrúi landskrifstofu Erasmus+.

Síðan vorið 2021 hefur Miriam staðið fyrir vinnustofum og fyrirlestrum um kynþátta- og menningarfordóma á Íslandi á eigin vegum, en sem íslensk manneskja með blandaðan bakgrunn dregur hún úr eigin persónulegri reynslu auk starfsreynslu sinnar í störfum með viðfangsefnið inngildingu. Miriam hefur skrifað greinar fyrir íslensk dagblöð og tímarit en hefur einnig verið til tals í sjónvarpi og útvarpi um málefni sem tengjast fjölmenningarlegu samfélagi.

Erindið sem Miriam mun flytja nefnist Auðugra land í fjölbreyttu samfélagi og fjallar um mikilvægi þess fyrir fjölmenningarsamfélagið Ísland að menningarlæsi og menningarnæmi aukist, sem gerist jafnan þegar fólk fer erlendis í nám, kynnist ólíkum menningarheimum og kemur með þá þekkingu heim.

HVAÐ TEKUR VIÐ ÞÉR HEIMA?

Friðrik Jónsson

FORMAÐUR BHM

Frið­rik Jóns­son er fæddur árið 1967 og hefur und­an­farin 25 ár starfað innan utan­rík­is­þjón­ustu Íslands. Meðal ann­ars hefur hann starfað á vett­vangi Alþjóða­bank­ans, Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og Sam­ein­uðu þjóð­anna og í sendi­ráðum Íslands í Was­hington og Kaup­manna­höfn. Hann hefur einnig verið for­stöðu­maður GRÓ, þekk­ing­ar­mið­stöðvar þró­un­ar­sam­vinnu, og full­trúi Íslands í emb­ætt­is­manna­nefnd Norð­ur­skauts­ráðs­ins. Frið­rik er með MA-gráðu í alþjóða­sam­skiptum og MBA-gráðu í alþjóða­við­skipt­um.

Friðrik er formaður BHM og mun fjalla um það hvernig vinnumarkaðurinn tekur við fólki sem snýr heim úr námi.

AKADEMÍSKAR TENGINGAR

Dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík

REKTOR HÁSKÓLANS Á BIFRÖST

Margrét er rektor Háskólans

á Bifröst

Dagskrá

Opnun málþingsins

12:30

Bjarki Þór Grönfeldt opnar málþingið og gefur fundarstjórn til Katrínar Oddsdóttur.

01

Ávarp ráðherra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir // Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðerherra

02

Kristján Guy Burgess

Hagsmunir Íslands og háskólanám erlendis

03

Miriam Petra Ómarsdóttir Awad

Auðugra land í fjölbreyttu samfélagi

04

Jóna Þórey Pétursdóttir

Yfirferð áskorana

05

Jóhann Gunnar Þórarinsson

Áskoranir foreldra

06

Sófaspjall

Freyja Haraldsdóttir, Heiða Vigdís Sigfúsdóttir og Sigurður Orri Kristjánsson ræða upplifun sína af námi erlendis.

07

Kaffi

Hvað er betra en einn rjúkandi bolli?

X

Friðrik Jónsson

Hvað tekur við þér hérna heima? Formaður BHM fer yfir stöðuna.

08

Dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík

Rektor Háskólans á Bifröst

09

Tækifærin

Innlendir og evrópskir styrkir og sjóðir hjá Rannís. Sigrún Ólafsdóttir, Sólveig Sigurðardóttir og Miriam Petra Ómarsdóttir Awad.

10

Pallborðsumræður

Bjarki Þór Grönfeldt, Kristján Guy Burgess og Sigríður Valgeirsdóttir.

10

Fundarstýra

Katrín Oddsdóttir er mannréttindalögfræðingur með gríðarlegan áhuga á félagsstörfum og fundarstjórnun. Katrín lauk BA námi í fjölmiðlafræði frá Dublin City University áður en hún söðlaði um til lögfræðinnar en þaðan fór hún í skiptinám til Sidney Institute of Technology. Auk þess lauk hún meistaragráðu í mannréttindum frá University of London og hefur því talsverða reynslu af námi erlendis.

fundarstýra

Katrín Oddsdóttir

Katrín Oddsdóttir er mannréttindalögfræðingur með gríðarlegan áhuga á félagsstörfum og fundarstjórnun. Katrín lauk BA námi í fjölmiðlafræði frá Dublin City University áður en hún söðlaði um til lögfræðinnar en þaðan fór hún í skiptinám til Sidney Institute of Technology. Auk þess lauk hún meistaragráðu í mannréttindum frá University of London og hefur því talsverða reynslu af námi erlendis.