Skip to main content

STÚDENTASTOFA REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNAR

By 02/07/2015SíNE fréttir

ReykjavíkurAkademían býður háskólanemum í framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) í félags- og hugvísindum tímabundna vinnuaðstöðu í svonefndri Stúdentastofu í húsakynnum Akademíunnar að Þórunartúni 2 í Reykjavík (sjá www.akademia.is) á mjög góðu verði eða krónur 10.000.- á mánuði, þjónustugjöld innifalin, fyrir tímabilið 1. september 2015 til 31. desember 2015. Möguleiki er á að komast inn í ágúst ef áhugi er fyrir hendi. Vinsamlegast látið vita ef þið viljið vera í ágúst líka.

Í boði er skrifborð í skrifstofu með öðrum auk aðgangs að sameiginlegum rýmum Akademíunnar; eldhúsi, fundarherbergi og fyrirlestrasal. Þráðlaus nettenging er í húsinu, sem og ljósritunarvél, faxtæki  og skanni, auk þess sem bókasafn Dagsbrúnar er þar til afnota.  ReykjavíkurAkademían er kraftmikið fræðasamfélag þar sem má finna fjölda fræðimanna, ungra jafnt sem þrautreyndra, á fjölmörgum sviðum hug- og félagsvísinda. Í upphafi dvalar er reiknað með að styrkþegar kynni verkefni sín fyrir fræðimönnum RA.

Stúdentaaðstaðan er hugsuð sem fjögurra mánaða dvöl fyrir hvern umsækjanda.

Að lokinni fjögurra mánaða dvöl geta stúdentar sótt um annað skrifstofupláss innan ReykjavíkurAkdemíunnar á almennu verði.

Umsóknir sendist ReykjavíkurAkademíunni, Þórunartúni 2, 105 Reykjavík, eða í tölvupósti:ra@akademia.is. Ekki eru notuð sérstök eyðublöð en umsækjendur eru beðnir að tilgreina stuttlega viðfangsefni sín, fræðasvið, hvar þeir eru í námi og áætluð námslok auk almennra upplýsinga. Umsóknir skulu berast í síðasta lagi mánudaginn 21. júlí mun niðurstaða úthlutunarnefndar liggja fyrir 30. júlí.

Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Hrafn í síma 562 8561 eða um netfangið ra@akademia.is