Skip to main content

Íslensk-ameríska félagið auglýsir styrki fyrir skólaárið 2016 – 2017

By 22/02/2016SíNE fréttir

Thor Thors styrkir til háskólanáms í Bandaríkjunum.  Umsækjendur skulu hafa lokið (eða ljúka í vor) námi til fyrstu gráðu háskólastigs (B.A., B.Sc., B.Ed. eða sambærilegri gráðu). Styrkhæft nám skal allt fara fram í Bandaríkjunum. Styrkirnir eru veittir framúskarandi umsækjendum sem hafa staðfestingu fyrir skólavist í bandarískum háskóla.

Styrkirnir eru veittir til eins árs. Í fjárhagsáætlun umsóknarinnar þarf að sýna fram á þörf fyrir styrk.  Upphæðir styrkjanna eru mismunandi eftir aðstæðum umsækjenda en undanfarin ár hafa styrkupphæðir verið 3.500-5.000 bandaríkjadalir.

Umsóknareyðublöð má sækja á www.iceam.is þar sem almennar upplýsingar koma einnig fram. Umsóknir skulu sendar á netfang iceam@iceam.is eigi síðar en 1. apríl 2016.