Thor Thors styrkir til háskólanáms í Bandaríkjunum. Umsækjendur skulu hafa lokið (eða ljúka í vor) námi til fyrstu gráðu háskólastigs (B.A., B.Sc., B.Ed. eða sambærilegri gráðu). Styrkhæft nám skal allt fara fram í Bandaríkjunum. Styrkirnir eru veittir framúskarandi umsækjendum sem hafa staðfestingu fyrir skólavist í bandarískum háskóla. Styrkirnir eru veittir til eins árs. Í fjárhagsáætlun umsóknarinnar þarf að sýna fram á þörf fyrir styrk. Upphæðir styrkjanna eru mismunandi eftir aðstæðum umsækjenda en undanfarin ár hafa styrkupphæðir verið 3.500-5.000 bandaríkjadalir. Umsóknareyðublöð má sækja á www.iceam.is þar sem almennar upplýsingar koma einnig fram. Umsóknir skulu sendar á netfang iceam@iceam.is eigi síðar en…
Read More