Skip to main content

Sumarráðstefna SÍNE 2025

By 05/07/2025SíNE fréttir

Takið daginn frá og vertu með í SÍNE! 🌍

Sumarráðstefna SÍNE fer fram fimmtudaginn 7. ágúst, kl. 17.00. Kosið verður í nýja stjórn félagsins og eru allt að níu fulltrúar kjörnir í stjórn af sumarráðstefnu. Forseti er kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum. Að öðru leyti segir til um stjórnarkjör í lögum félagsins. Staðsetning og nánari dagskrá verða auglýst síðar en einnig er boðið uppá rafræna þátttöku á ráðstefnunni.

Minnt er á að hægt er að vera félagi í SÍNE í allt að sjö ár eftir að námi lýkur. Við hvetjum sérstaklega námsmenn sem hafa lokið sínu námi erlendis og flutt heim nýlega til að bjóða sig fram!

Við hvetjum félagsmenn til að mæta á staðinn, vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda póst á sine@sine.is og hvort þið óskið eftir að taka þátt á fundinum rafrænt. Hafa má samband á sama netfang með fyrirspurnir um stjórnarkjörið. Við hvetjum öll áhugasöm til að taka þátt í starfinu og bjóða sig fram!