Sumarráðstefna SÍNE verður haldin fimmtudaginn 13. ágúst 2020 kl. 17:00 að Borgartúni 6 (BHM-húsið-4-hæð).
Þá eru allir SÍNE-félagar hvattir til að mæta á Sumarráðstefnuna sem og bjóða sig fram til stjórnar. Í því samhengi er vert að vekja athygli á því að félagsmenn geta haldið aðild að SÍNE í allt að 7 ár eftir að námi lýkur.
Samkvæmt 9. gr. laga um SÍNE skulu eftirfarandi dagskrárliðir vera teknir fyrir á Sumarráðstefnu SÍNE:
a) Setning Sumarráðstefnu.
b) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
c) Skýrsla fulltrúa SÍNE í stjórn LÍN um vormisseri lögð fram ásamt umræðum
d) Skýrsla stjórnar SÍNE um vormisserið lögð fram ásamt umræðum.
e) Endurskoðaðir reikningar fyrir starfsárið teknir til afgreiðslu
f) Stjórnarskipti
g) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
h) Ákvörðun um upphæð árgjalda fyrir komandi starfsár
i) Lagabreytingar
j) Önnur mál
k) Sumarráðstefnu slitið
Vakin er sérstök athygli á því að það liggur fyrir tillaga um lækkun félagagjalda í kr. 1.900.- sbr. h-lið.