Sæmundur 34.árgangur 2.tölublað nóvember 2016
Í umboði stjórnar var undirrituðum falið að endurskoða lög SÍNE með því markmiði að nútímavæða þau, einfalda og gera markvissari. Þá var talin þörf á að gera efnislegar breytingar varðandi atkvæðagreiðslur, fundarsetu, stjórnarsetu, félagsgjald, félagsaðild, lagaskil og valdssvið stjórnar, funda félagsmanna og fleiri atriða. Þegar um efnislegar breytingar er að ræða eru gerðar athugasemdir fyrir neðan umrætt ákvæði. Formbreytingar eru gerðar á nær öllum ákvæðum en ekki er minnst sérstaklega á þær í athugasemdum fyrir neðan ákvæði. Í þeim tilvikum sem núgildandi lagaákvæði voru fjarlægð eða verulegar efnislegar breytingar gerðar á þeim eru ákvæðin tekin upp í neðanmálsgrein.
Lög Sambands íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE)
ásamt lagabreytingartillögum
I.Kafli Nafn og tilgangur.
1.gr. Nafn og heimili
Nafn félagsins er Samband íslenskra námsmanna erlendis, skammstafað SÍNE. Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.
2.gr. Tilgangur
Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna sem stunda nám erlendis og vera tengiliður þeirra við þau stjórnvöld sem koma að kjörum þeirra á Íslandi.
II.Kafli Félagsaðild.
3.gr. Aðild
Allir íslenskir námsmenn erlendis geta óskað eftir félagsaðild að SÍNE gegn greiðslu árgjalds. Auk þess geta þeir námsmenn sem áður hafa lokið námi erlendis sótt um aðild að félaginu í allt að fimm ár frá því að námi þeirra lýkur.
Um breytingar
Í dag getur þú sótt um aðild að félaginu í allt að þrjú ár frá því að námi lýkur. Í samræmi við markmið stjórnar SÍNE um að auka þátttöku í stjórnarstörfum og í störfum fyrir hönd sambandsins af hálfu félagsmanna og þeirra er hafa stundað nám erlendis er þetta tímamark aukið í fimm ár.
Þá er afnumin sú heimild að þeir sem ekki njóta lánakjara frá LÍN þar sem nám þeirra er ekki lánshæft geti fengið félagsaðild að SÍNE án greiðslu árgjalds. Heimildin hefur lítið verið nýtt svo best verður séð og þörfin á slíkri heimild er óljós enda námsmönnum erlendis fullfrjálst að sækja um aðild gegn greiðslu árgjalds[1]
4.gr. Hámark aðildar
Félagsaðild að SÍNE varir svo lengi sem námsmaður er í námi erlendis og greiðir árgjald hvert námsár. Hins vegar getur aðildarfélagi að SÍNE, sem lokið hefur námi sínu erlendis, haldið félagsaðild í fimm ár eftir að námi lýkur án greiðslu árgjalds.
Um breytingar
Hér er skerpt á því að greiða þarf árgjald hvert ár sem nemendi er í námi erlendis til að halda félagsaðild en lögin voru nokkuð óljós um þetta atriði.[2]
- gr. Úrsögn
Vilji félagi segja sig úr SÍNE skal hann koma þeirri beiðni sinni á framfæri við SÍNE ýmist bréfleiðis eða gegnum tölvupóst. Félagsmaður öðlast ekki rétt á endurgreiðslu árgjalds segi hann sig úr félaginu
Um breytingar
Það var talið mikilvægt að skýra nánar boðleiðir og heimildir félagsmanna til úrsagnar úr félaginu.
III.Kafli Jólafundur SÍNE
- gr. Jólafundur
Jólafund SÍNE skal halda í Reykjavík árlega í desember mánuði. Jólafundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins ásamt Sumarráðstefnu þess. Stjórn SÍNE ber að boða félagsmenn sína til jólafundar með fundarboði stjórnar sem birta skal á vefsíðu félagsins með minnsta kosti mánaðar fyrirvara. Atkvæðisrétt á jólafundi hafa einungis fullgildir félagsmenn SÍNE auk stjórnar en hver einstaklingur hefur eitt atkvæði. Við atkvæðagreiðslu skal einfaldur meirihluti atkvæða á löglega boðuðum fundi ráða niðurstöðu mála.
Um breytingar
Ástæða þótti til að skerpa á ákvæðum um jólafund, þannig er mögulegur fundartími rýmkaður í ljósi mikilla samfélagsbreytinga og e.t.v. í ljósi lítillar fundarsóknar félagsmanna á þá fundi sem hafa verið milli jóla og nýárs. Von okkar er að fleiri félagsmenn muni mæta á fyrrnefnda fundi eftir þessar breytingar. Þá er um leið gerð sú krafa að fundurinn sé auglýstur með mánaðar fyrirvara og sömuleiðis fallið frá kröfu um að fundurinn verði auglýstur í Sæmundi.[3] Þá er skerpt á atkvæðisrétti og atkvæðisvægi félagsmanna.
Að auki var talið eðlilegra að lagabreytingar myndu verða teknar til umræðu á sumarráðstefnu fremur en jólafundi og er því breytt hér með. Rökin fyrir því eru einkum þau að líklegra er að fleiri félagsmenn séu á landinu að sumri til og að mörgu leyti auðveldara fyrir félagsmenn að mæta á þá fundi og hefur reynslan verið sú. Er markmiðið ennfremur með þessum breytingum að gera jólafund minni í sniðum og að þar fari aðallega fram umræður um haust-misserið og árið framundan.
- gr. Dagskrá Jólafundar
Á dagskrá Jólafundar skulu vera eftirtaldir liðir:
- a) Setning Jólafundar.
- b) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- c) Skýrsla fulltrúa SÍNE í LÍN um haustmisserið lögð fram ásamt umræðum.
- d) Skýrsla stjórnar SÍNE um haustmisserið lögð fram ásamt umræðum.
- e) Reikningsyfirlit fyrir tímabilið 1. júní til áramóta lagt fram.
- f) Tillögur til ályktunar jólafundar afgreiddar.
- g) Tillögur um stjórn og skoðunarmenn reikninga
- h) Önnur mál
- i) Jólafundi slitið
Um breytingar
Sjá fyrst og fremst að ofan varðandi efnislegar breytingar um lagabreytingartillögur en þannig er til að mynda afnumin stafliður um kjörstjórn enda hefur verið vikið frá því ákvæði á Jólafundi. Þá hefur í framkvæmd framkvæmdastjóri tekið saman helstu atvik haust-misseris fyrir hönd stjórnar.
- Kafli Sumarráðstefna SÍNE
- gr. Sumarráðstefna
Sumarráðstefnu SÍNE skal halda í Reykjavík á tímabilinu frá og með 1. júní til og með 15. ágúst. Sumarráðstefna hefur æðsta vald í málefnum félagsins ásamt Jólafundi þess. Stjórn SÍNE ber að boða félagsmenn sína til Sumarráðstefnu með fundarboði stjórnar sem birta skal á vefsíðu félagsins með minnst mánaðar fyrirvara. Atkvæðisrétt á Sumarráðstefnu SÍNE hafa einungis fullgildir félagsmenn SÍNE auk stjórnar. Við atkvæðagreiðslu skal einfaldur meirihluti atkvæða á löglega boðuðum fundi ráða niðurstöðu mála.
Um breytingar
Með breytingunum er rýmkaður sá tími sem hægt er að halda fundi en nú verður hægt að halda sumarráðstefnu í júní, júlí eða ágúst mánuði.[4] Þá er skerpt á fundarboði en nú verður að auglýsa með mánaðarfyrirvara og fallið frá kröfu um auglýsingu í Sæmundi.[5]
9.gr. Dagskrá Sumarráðstefnu
Á dagskrá Sumarráðstefnu SÍNE skulu vera eftirtaldir liðir:
- a) Setning Sumarráðstefnu.
- b) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- c) Skýrsla fulltrúa SÍNE í stjórn LÍN um vormisseri lögð fram ásamt umræðum
- d) Skýrsla stjórnar SÍNE um vormisserið lögð fram ásamt umræðum.
- e) Endurskoðaðir reikningar fyrir starfsárið teknir til afgreiðslu
- f) Stjórnarskipti
- g) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- h) Ákvörðun um upphæð árgjalda fyrir komandi starfsár
- i) Lagabreytingar
- j) Önnur mál
- k) Sumarráðstefnu slitið
Um breytingar
Aðallega formlegar breytingar. Þó má vísa til þess að lagabreytingar falla nú undir sumarráðstefnu auk þess sem skoðunarmenn reikninga eru tilnefndir tveir og engir varamenn í samræmi við þá framkvæmd sem verið hefur.
V.Kafli Stjórn og framkvæmdastjóri SÍNE
- gr. Stjórn
Stjórn SÍNE situr í Reykjavík og skal kosið til hennar á sumarráðstefnu félagsins en stjórn þess skipa minnst þrír og mest sjö aðalmenn. Þeir félagsmenn er lokið hafa námi erlendis eru kjörgengir í stjórn. Á Sumarráðstefnu skal kosið til formanns, en að öðru leyti skiptir hún sjálf með sér verkum og eftir atvikum skipar varaformann, ritara og gjaldkera. Hver stjórnarmaður hefur eitt atkvæði og ræður einfaldur meirihluti úrlausn mála. Stjórnarmenn eru undanþegnir greiðslu félagsgjalda.
Um breytingar
Skerpt er á atkvæðavægi stjórnarmanna auk þess sem nú verður kosið til formanns á sumarráðstefnu SÍNE en stjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum, s.s. varaformann, ritara og gjaldkera. Þá er skerpt á kjörgengi til stjórnar SÍNE sbr. þó síðari undanþágur frá því.
- gr. Verkefni og hlutverk stjórnar
Stjórn SÍNE fer með æðsta vald í málefnum sambandsins á milli Sumarráðstefnu og Jólafundar. Hlutverk stjórnar er að gæta hagsmuna félagsmanna í samræmi við tilgang SÍNE og ber skylda að gæta þess að ákvarðanir stjórnar fari eigi í bága við lög félagsins. Að meginreglu skal stjórn leita eftir vitneskju um vilja félagsmanna vegna ákvarðanna er varða verulega hagsmuni þess, ýmist með tölvupóstum til félagsmanna eða áskorunum á vefsíðu SÍNE eða samfélagsmiðlum.
Um breytingar
Skerpt var á hlutverki, verkefnum og valdssviði stjórnar.
- gr. Kjör stjórnar
Þeir aðilar sem flest atkvæði ná í kjöri til stjórnar SÍNE skulu teljast réttkjörnir stjórnarmenn en hver félagsmaður hefur eitt atkvæði. Í þeirri stöðu að tveir eða fleiri hljóti sama atkvæðismagn til sjöunda og síðasta sætis stjórnar skal kosið sérstaklega þeirra á milli. Ef atkvæði standa enn á jöfnu skal varpað hlutkesti þeirra á milli.
Um breytingar
Skerpt er á kosningu til stjórnar svo ekki myndist vafatilvik.
- Kjör stjórnarmanna í sérstökum tilfellum
Þegar svo stendur á að stjórn SÍNE er ekki skipuð sjö aðalmönnum er heimilt, með samþykki 2/3 hluta stjórnar, að skipa stjórnarmann í stjórn félagsins á opnum stjórnarfundi. Þegar svo stendur á skal auglýst með minnst tveggja vikna fyrirvara á vefsíðu félagsins að óskað sé eftir frekari aðilum í stjórn þess. Auk þess skal dagsetning og staðsetning fundarins auglýst þar sem öllum félagsmönnum er bent á að þeir geti boðið sig fram til stjórnar. Bjóði félagsmenn sig fram til stjórnar félagsins svo mögulegt sé að skipa sjö stjórnarmenn er ekki heimilt að skipa utanfélagsmann í stjórn SÍNE. Einungis er hægt að skipa tiltekin utanfélagsmann í stjórn SÍNE tvisvar og að hámarki til tveggja námsára. Framboðsfrestur til stjórnar rennur út við upphaf stjórnarfundar.
Um breytingar
Hér er e.t.v um veigamestu breytinguna að ræða á lögum SÍNE og það sem er að mati stjórnar SÍNE nauðsynlegt að nái fram að ganga. Í ljósi þess hve lítill áhugi hefur verið á að sinna stjórnarstörfum fyrir hönd SÍNE og að tæplega hafi verið hægt að mynda þriggja manna starfhæfa stjórn undanfarin ár var talið nauðsynlegt að ráðast í þessar breytingar. Að mati stjórnar þyrfti stjórn að vera skipuð hið minnsta fimm félagsmönnum en eins og sakir standa eru einungis fjórir í stjórn. Hins vegar gæti stjórn SÍNE sinnt hlutverki sínu hvað best ef hún væri mönnuð sjö stjórnarmönnum enda allir í sjálfboðavinnu. Með breytingunni verður hægt að skipa utanfélagsmenn í stjórn til að gæta hagsmuna námsmanna erlendis en einungis í þeim tilvikum sem félagsmenn hafa ekki boðið sig fram til stjórnarsetu svo náist sjö manna stjórn. Þetta er langt í frá óskastaða en betra er að fleiri en færri berjist fyrir hagsmunum námsmanna erlendis.
- gr. Fundir
Stjórn SÍNE ber ábyrgð á að funda reglulega um málefni sambandsins og skal stefnt að því að funda hið minnsta á tveggja mánaðar fresti.
Um breytingar
Talin var þörf á því að fá meiri festu í stjórnarfundi svo ekki líði of langt á milli hvers fundar.
- gr. Stjórnarseta á vegum SÍNE
Stjórn SÍNE skipar fulltrúa af hálfu félagsins í stjórn Lánasjóð íslenskra námsmanna (LÍN), Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) og Landssambands æskulýðsfélaga (LÆF) og gæta þeir hagsmuna félagsmanna SÍNE í öllu. Þá getur stjórn SÍNE tilnefnt fulltrúa í aðrar nefndir, stjórnir eða ráð sem varða hagsmuni félagsins. Þá er stjórn SÍNE heimilt að skipa undirnefndir eða setja á fót undirfélög, jafnt hér á landi sem og erlendis, sem gæta hagsmuna félagsmanna. Stjórn SÍNE er heimilt að segja sig úr ofangreindum stjórnum, nefndum og ráðum með samþykki allra stjórnarmanna er viðstaddir eru löglega boðaðan stjórnarfund. Einfaldur meirihluti atkvæða félagsmanna á Sumarráðstefnu eða Jólafundi dugar til hins sama. Einungis er hægt að skipa félagsmann eða stjórnarmann SÍNE í stjórnir, nefndir og ráð á vegum félagsins.
Um breytingar
Stjórn þótti fara betur á því að tilgreina sérstaklega þau félög sem SÍNE á aðild að og opna fyrir inngöngu SÍNE að fleiri félögum í samræmi við lög og reglur félagsins. Þá er sett á fót heimild til að skipa undirnefndir og undirfélög sem starfa í þágu SÍNE hér heima og/eða erlendis.
- gr. Vantraust
Þegar svo ber undir að hið minnsta tuttugu skráðir félagsmenn SÍNE lýsi yfir vantrausti á stjórn, í gegnum bréf- eða tölvupóst á milli Sumarráðstefnu og Jólafundar félagsins, skal kosið aftur til stjórnar á jólafundi félagsins eftir þeim reglum sem gilda í lögum þessum um stjórnarkjör á Sumarráðstefnu félagsins.
Um breytingar
Í ljósi þess að ákvæði um allsherjaratkvæðagreiðslu er afnumið með lögum þessum þótti ástæða til þess að innleiða ákvæði um vantraust á stjórn telji ákveðinn hluti félagsmanna að hún valdi ekki verkefnum sínum.
- Framkvæmdastjóri
Stjórn SÍNE er heimilt að ráða framkvæmdastjóra til að sinna verkefnum og fara með daglega starfsemi af hálfu félagsins. Þá skal framkvæmdastjóri sjá um útgáfu Sæmundar, málgagns SÍNE, sem skal vera opinn öllum félagsmönnum SÍNE. Félagsmönnum skal með hæfilegum fyrirvara gerð grein fyrir loka skilafresti efnis í hvert blað.
Framkvæmdastjóra er heimilt að sitja á öllum fundum SÍNE og hefur hann þar málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt. Undirskrift framkvæmdastjóra bindur sambandið vegna ráðstafanna er varða daglegan rekstur þess. Starfs- og launakjör framkvæmdastjóra eru ákveðin af stjórn. Stjórn er ennfremur heimilt að ráða sér starfsmenn, semja um kaup þeirra og kjör sem og ákveða starfssvið þeirra.
Um breytingar
Það er skerpt á valdsviði framkvæmdastjóra og hlutverki hans. Auk þess er skerpt á heimild til þess að ráða frekari starfsmenn. Ákvæði um trúnaðarmenn tekið út enda lítið sem ekkert nýtt í framkvæmd.[6]
VI.Kafli Fjármál.
- gr. Fjárreiður og bókhald
Stjórn SÍNE er heimilt að fela framkvæmdastjóra eða öðrum launuðum starfsmanni að annast fjárreiður og bókhald SÍNE í umboði stjórnar.
- gr. Reikningsár
Reikningsár SÍNE er frá 1.júlí til 30.júní ár hvert.
- gr. Árgjald SÍNE
Stjórn SÍNE er heimilt með samþykki 2/3 hluta stjórnarmanna að breyta árgjaldi SÍNE. Sé breyting gerð til hækkunar skal hún þó ekki nema meira en 20% á hverju ári. Heimilt er að breyta árgjaldi á Sumarráðstefnu SÍNE með einföldum meirihluta greiddra atkvæða.
Um breytingar:
Breytingar eru gerðar í þá veruna að nú getur 2/3 hluti stjórnar breytt árgjaldinu en hámarkið er sett við 20% á ári. Áður var miðað við einfaldan meirihluta og framfærsluvísistölu.
VII.Kafli Lög og breytingar.
21.gr. Lagabreytingar
Lagabreytingartillögur skulu lagðar fram og hljóta umfjöllun á Sumarráðstefnu SÍNE. Í fundarboði skal þess sérstaklega getið að lagabreytingartillögur verði teknar til meðferðar á Sumarráðstefnu. Skulu breytingartillögur að lögum félagsins hafa borist stjórn félagsins í síðasta lagi viku fyrir upphaf þeirrar sumarráðstefnu sem þær eiga að hljóta umfjöllun á. Stjórn SÍNE skal birta þær lagabreytingartillögur sem borist hafa innan tímamarka á vefsíðu félagsins í síðasta lagi þremur dögum fyrir Sumarráðstefnu. Skal sú tillaga sem flest atkvæði hlýtur teljast hafa hlotið samþykki sem ný lög félagsins.
Um breytingar
Ekki verður lengur gerð krafa um allsherjaratkvæðagreiðslum meðal félagsmanna enda er slíkt illframkvæmanlegt og hefur í raun gert allar lagabreytingar torveldar í gegnum tíðina. Breytingar gerðar á formi og þá í samræmi við áðurnefndar breytingar um hvenær lagabreytingartillögur eru afgreiddar.
22.gr. Lagaskil
Samþykktar lagabreytingar félagsins taka gildi um leið og þær hafa verið birtar á vefsíðu SÍNE. Stjórn félagsins skal koma því til leiðar að ný samþykkt lög verði birt eins fljótt og auðið er og ekki síðar en fimm dögum eftir Sumarráðstefnu. Liggi vefsíða félagsins niðri skal birta lög SÍNE ásamt ný samþykktum lagabreytingartillögum um leið og unnt er. Þangað til skulu gildandi lög SÍNE ráða úrslitum.
Um breytingar
Breytingar í þá veruna að skerpa á ábyrgð stjórnar og birtingu laga. Þá er skerpt á lagaskilum þegar lög hafa ekki enn verið birt félagsmönnum.
Bráðabirgðaákvæði
Þeir fulltrúar SÍNE sem núþegar eru skipaðir í stjórnir á vegum félagsins halda stjórnarsetu sinni fram að næstu sumarráðstefnu SÍNE.
Frekari breytingar sem gerðar eru á lögum:
– Fallið var frá ákvæðum um allsherjaratkvæðagreiðslur og framkvæmd á þeim í ljósi breyttra þjóðfélagsaðstæðna.[7] Rökin fyrir þeirri tillögu eru margvísleg. Fyrst og fremst hefur ákvæðið ekki verið nýtt síðustu ár og er mjög ópraktískt. Þannig er það erfiðleikum bundið fyrir stjórn SÍNE að taka saman kjörskrá í ljósi fjölbreytileika aðildar, þ.e. að þeir sem hafa lokið námi halda aðild án greiðslu árgjalds. Þá yrði mjög dýrt að halda atkvæðagreiðslu sem þessa með fullnægjandi hætti. Við samþykkt þessara laga er sú framkvæmd valin sem leiðir til sem allra minnsta tilkostnaðar. Álíka tillaga verður lögð fyrir framkvæmdastjóra SÍNE sem sér um framkvæmd kosninga, þ.e. að framkvæmd kosningar hafi í för með sér sem minnstan tilkostnað fyrir SÍNE.
Jóhann Gunnar Þórarinsson
Formaður SÍNE
f.h. stjórnar SÍNE
[1] 2. mgr. 3. gr.: „Íslenskir námsmenn erlendis sem ekki njóta lána frá LÍN eða öðrum sambærilegum lánastofnunum, þar sem nám viðkomandi námsmanns telst ekki vera lánshæft samkvæmt reglum ofangreindra lánastofnana, geta óskað eftir félagsaðild að SÍNE án greiðslu félagsgjalda.“ [2] 4. gr.: „Félagsaðild að SÍNE varir svo lengi sem námsmaður er í námi erlendis.“ [3] 2. málsl. 2. mgr. 15. gr „Stjórn SÍNE ber að boða félagsmenn sína til jólafundar með fundarboði stjórnar sem birtast skal í síðasta tölublaði af Sæmundi eða Sæma fyrir jól.“ [4] 1. málsl. 4. mgr. 15. gr.: „Sumarráðstefnu SÍNE skal halda í Reykjavík í fyrstu vikunni eftir verslunarmannahelgi.“ [5] 2. málsl. 4. mgr. 15. gr.: „Stjórn SÍNE ber að boða félagsmenn sína til sumarráðstefnu með fundarboði stjórnar sem birtast skal í síðasta tölublaði af Sæmundi eða Sæma fyrir sumarleyfi.“ [6] 11. gr.: „Trúnaðarmenn skulu vera tengiliðir milli félagsmanna og stjórnar SÍNE. Trúnaðarmenn skulu halda reglulega fundi með félögum.“ [7] Ákvæði 18. gr.: „Æðsta vald í málefnum SÍNE er allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna. Einfaldur meirihluti stjórnar SÍNE getur óskað eftir því að fram fari allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna. Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna SÍNE skal einnig fara fram ef tillaga þar að lútandi kemur fram frá að minsta kosti 25 atkvæðisbærum félagsmönnnum.“ Einnig 19. gr.: „Kjörstjórn setur almennar reglur um framkvæmd allsherjaratkvæðagreiðslu og skal hún gæta fyllsta hlutleysis. Kjörstjórn skal birta kjörgögn og póstleggja atkvæðaseðla eigi síðar en 15.mars en atkvæðaseðlar skulu póstlagðir til kjörstjórnar eigi síðar en 1.maí ellegar skulu þeir teljast ógildir. Á kjörseðli til stjórnarkjörs skulu vera nöfn frambjóðenda og námslönd.“