Niðurfelling aðildargjalda og ný stjórn

By 28/09/2026SíNE fréttir

Það gleður okkur að tilkynna það að ný stjórn SÍNE hefur ákveðið að fella niður aðildargjöld fyrir skólaárið 2026-2027. Sú ákvörðun var tekin síðastliðinn ágúst þegar ný stjórn SÍNE var kosin á sumarráðstefnu þann 15. ágúst 2026.

Stjórn SÍNE 2026/2027 samanstendur af bæði nýjum og gömlum andlitum:

Þórhildur Kristbjörnsdóttir forseti, Elvar Breki Árnason varaforseti, Nanna Hermannsdóttir menntastjóðsfulltrúi, María Sól Antonsdóttir gjaldkeri, Hrafnhildur Jóna Steingrímsdóttir ritstýra Sæmundar, Guðrún Fríða Snorradóttir Wium samfélagsmiðlastjóri og Silja Sigrún Ólafsdóttir Lukešová ritari.

Við í stjórninni hlökkum mikið til vetrarins og verkefnanna sem við ætlum að ráðast í, bæði gömul og ný. Eins og vanalega verður hægt að fylgjast með starfi SÍNE bæði á heimasíðunni ásamt samfélagsmiðlum. Einnig ætlum við að endurvekja fréttabréfið okkar og viljum við því hvetja fólk til þess að skrá sig á póstlistann (efst á heimasíðunni).

Share